tiistaina, helmikuuta 17, 2009
Munar þig um 1000 kall á mánuði?
Kæri viðtakandi
Það eru 13.295 börn í skólum ABC barnahjálpar. Vegna lágs gengis krónunnar hefur
víða þurft að hætta að gefa börnunum skólamáltíðir sökum fjárskorts.
Skólamáltíðin er oft á tíðum eina máltíðin sem börnin fá þann daginn og því afar
mikilvæg til að börnin haldi heilsu og þreki. Börnin koma frá mjög fátækum
fjölskyldum sem hafa lítið sem ekkert á milli handanna og því veltur stundum á
skólamáltíðunum hvort barnið er sent í skóla eða út á göturnar til að vinna.

Treystir þú þér til að borga 1000 kr. á mánuði fyrir skólamáltíðir eins barns?

Smelltu hér ef þú vilt greiða fyrir skólamáltíðir barns
http://www.abc.is/ABChjalparstarf/Styrkjastarfid/Skolamaltidiraskrift/

Smelltu hér ef þú vilt taka að þér barn (persónulegur stuðningur)
http://www.abc.is/ABChjalparstarf/Stydjabarn/
Fjölmörg börn í ABC skólunum hafa ekki enn fengið stuðningsaðila.

Viltu vera svo væn/vænn að áframsenda þessa beiðni á alla sem þú getur.

Takk fyrir stuðninginn
ABC barnahjálp

Erla Elíasdóttir @ 7:15 ip.  


Meðlæti:

- - -

Gestgjafar:

Free Blogger Templates

BLOGGER