sunnuntaina, marraskuuta 09, 2008
Láríókí
Ég hef vitað af karókíi á Lárunni á föstudagskvöldum. Það sem ég ekki vissi af er helsti hvatamaður og þátttakandi téðs karókís. Ekki nóg með að kauði eigi allt gott skilið fyrir að hafa skutlast með þvottavél frá Eskifirði fyrir okkur, bláókunnugt utanbæjarfólkið, heldur reynist hann ennfremur forfallinn RHPS/LSOH-aðdáandi og á karókídisk með tónlist úr báðum myndunum! Með öðrum orðum skemmti ég mér einkar vel á föstudaginn.

Vek athygli á nýjum link - lesið um ævintýri Áu, Davíðs, Halldóru og Nönnu.
Erla Elíasdóttir @ 5:46 ip.  


Meðlæti:

- - -

Gestgjafar:

Free Blogger Templates

BLOGGER