lauantaina, maaliskuuta 29, 2008 |
Veðurlagsins blíða |
Elsku vor.
Ég vona að við náum að hittast almennilega á meðan þú staldrar hér við. Dagarnir eru að vísu fullir veggjanna á milli af hálf- eða óunnum verkum, en ég bý sem betur fer svo vel að geta lokað vegna veðurs. Guðaðu bara á gluggann þegar þú átt leið hjá, þá mun ekki standa á mér.
Kær kveðja,
Erla |
Erla Elíasdóttir @ 12:04 ip.  |
|
|