torstaina, heinäkuuta 06, 2006 |
Ársins |
(Vandamál dagsins; bjór. Í herberginu mínu, í fimm flöskum og átta dósum. Vandamál, þareð ég veit ekki hvað skal gera við hann. Bera hann út á meðal fólks, láta bera sig eftir honum hingað, eða einfaldlega skilja hann eftir? Eftir að hafa svo nýlega svitnað bjór í viku af Hróarskeldu ætti ég kannski að búa að hækkuðum bjórþolsþröskuldi, en það væri of trist að verða svo drukkin, í hálfbjörtu hálftómi niðurgrafins herbergis, ein. Í kvöld. Nenni því jafnvel síður en hinu.)
barn: Matti
kona: Hafdís
seleb: Gagarín
heimsálfa: Ástralía
eyja: Hven
borg: Moskva
kósíbær: Ribe
kommabær: Tula
ömurðarbær: Esbjerg
gata: Blågårds
hjól: blátt
strætó: 12
metró: Majakovskís
safn: Majakovskís
peysa: mörgæsa
bjór: tilboðs
matur: laukar
garðar: kirkju
sveit: Camber
tónleikar: Devendra
lag: Court and Spark
skandinavar: Norðmenn
vonbrigði: rauðvínstófú
sjokk: skipperpöbbs
afrek: já
gleði: óséð
helstu uppgötvanir: finnskur tangó, franskar stelpur, grísk jógúrt, Kinks, kínversk húsráð og kúskús.
- - -
(Pé ess, þá var umræddur bjór skilinn hér eftir. Ég er semsé ekki að kaupa helling af einhverju sem mig langar ekki í og búa til vandamál úr því.) |
Erla Elíasdóttir @ 7:11 ip.  |
|
|