lauantaina, kesäkuuta 03, 2006 |
Bú |
Allt sem búið verður eins búið og það verður. Ég á við skólann. Sumarið er hinsvegar ekki búið, gleðin, dansinn, söngurinn, flugurnar eða sólin. Ég er ekki búin að tiltektinni sem ég byrjaði á áðan (eftir ábendingu apríls dagatalsins), þó alveg mjög nánast. En er búin að fá tvo pakka í póstinum. Mamma sendi flík sem mér líkar stórvel og er í núna, en er að vísu grunsamlega sniðin, líktog til að gera ráð fyrir möguleika aukinnar víddar um magann, svosem að lokinni þriggja mánaða meðgöngu, eða tíu mánaða bjórdrykkju. Spurning hvort móðir mín geri sér frekar vonir um. Ég er ekki búin að pakka saman eigum mínum, eða byrjuð á því að neinu leyti enda alls ótímabært, en þó væri ágætt að hafa hugmynd um umfang draslsins, áðuren að því komi að þurfi svo að drasla því. Heim.
This world is big and wild and half insane
Take me where real animals are playing
Just a dirty old shack
Where the hound dogs bark
That we called our home
I want to be back there
Among the cats and dogs
And the pigs and the goats
On animal farm
My animal home
On animal farm
My animal home -Kinks, "Animal Farm" |
Erla Elíasdóttir @ 4:25 ip.  |
|
|