torstaina, helmikuuta 09, 2006 |
Til hamingju með afmælið amma. |
Hvar er Kambastígur? er hann yfirleitt til? þar er allavega mitt reykvíska heimilisfang skráð í pappírum sem alþjóðaskrifstofa háskólastigsins sendi mér til útfyllingar. Á föstudaginn fór ég á föstudagsbar líffræðideildarinnar, þar varð ég að fylla út eyðublað til að kaupa bjór. Annars kósí staður með fallegum veggjum. Minnir á kafbát. Hárið á mér er að skipta um lit, en kannski hárið á mér sé bara draumur, ég á stundum fullerfitt með að vita hvort mig sé að dreyma lífið eða lífið mig.
Kveðjustund í dag, svo rússneskt bíó.
|
Erla Elíasdóttir @ 10:58 ap.  |
|
|