maanantaina, huhtikuuta 04, 2005 |
Dagur |
Drykkur dagsins: kaffi
Tónlist dagsins: Cure
Vera dagsins: Aloe Vera
Ljóð dagsins:Loksins rifnar brjóst mitt, loksins sé ég að líkami minn er fullur af blómum, eitruðum blómum og um líkamann fara straumar. Loksins líf eða ég veit ekki hvað þetta er.
Leyfðu mér að vera fljótandi.
Leyfðu mér að falla.
Leyfðu mér,
ég get ekki lifað lengur svona.
Ég veit ekkert hver ég er.
Ég er brjáluð kona.
Ég vil bara fá að syngja.
Syngja
uns brjóst mitt rifnar, og allt fyrir utan titrar af söng, sem ég skynja á þessum landamærum.
Söngur sem ærir heiminn.
Leyfðu mér að farast
í brennandi eldi, í blautri gröf,
horfðu, ég skipa svo, horfðu.
Sjáðu,
sjáðu mig.
Það er eina leiðin til að elska mig. Elísabet Kristín Jökulsdóttir
|
Erla Elíasdóttir @ 11:48 ip.  |
|
|