perjantaina, maaliskuuta 25, 2005
Atensíón


Hver man ekki eftir skiltinu sem ÍTR kom fyrir á sundstöðum borgarinnar og hangir sumsstaðar enn; mynd af mennskum útlínum, rautt yfir það sem skal þvo sérstaklega vel og „vinsamleg tilmæli“ á fimm tungumálum ásamt viðeigandi þjóðfánum. Nú er aldrei að vita hversu mikil hugsun var á sínum tíma lögð í tilmæli þessi, og hvort eftirtalið var þá með ráðum gert:
-á dönsku er einfaldlega talað um að vaske sig

-á íslensku og ensku er vandlega/thoroughly látið duga

-á frönsku og þýsku er tekið fram að þvo eigi sér með savon/seife
Erla Elíasdóttir @ 1:56 ip.  


Meðlæti:

- - -

Gestgjafar:

Free Blogger Templates

BLOGGER