sunnuntai, tammikuuta 16, 2005 |
Afrek helgarinnar í krónólógískri röð: |
- borða sandhverfu í kvöldmat
- fá blæðandi sár eftir hálkudett
- lenda á strætóbílstjóra sem var leiðinlegri en gubbupest
- týna úlpu sem amma átti á Gauknum
- finna úlpuna aftur á allt öðrum stað á Gauknum
- vera boðið í trekant á Gauknum
- afþakka fyrrnefnt boð
- fá annað blæðandi sár eftir annað hálkudett
- setja hraðamet í afmælispakka- og steinseljukaupum
- fá óvænt frábæra gjöf frá afa mínum yndislega
- útskýra fyrirbærið plokkfisk á frönsku
- verja hvala- og lundaát Íslendinga fyrir frönskum grænfriðungi
|
Erla Elíasdóttir @ 11:27 ip.  |
|
|